Sophos Veiruvarnarforrit
Sophos Anti-Virus er fullkomin veiruvörn með netvirkni sem útgangspunkt. Hún var hönnuð sérstaklega fyrir fyrirtækjaumhverfi og býður upp á sveigjanlegar og auðveldar lausnir til að stjórna þessum málum hjá fyrirtækjum allt frá litlum staðarnetum yfir í gríðarstór netkerfi með fjöldann allann af netþjónum og útstöðvum.
Sophos býður upp á frábærar lausnir fyrir kerfisstjóra fyrirtækja því frá einum útgangspunkti (einni vél/server) geta þeir uppfært allt netkerfi fyrirtækisins og fylgst með að allar útstöðvar séu að uppfærast rétt og þar með vel varðar. Fyrir þau fyrirtæki sem hafa sýna eigin póstgáttir býður Sophos uppá öflugar veiru- og ruslpóstsíur.
Verisign dulkóðun
Netheimur hefur hlotið vottun Verisign sem endursöluaðili. Netheimur er samstarfsaðili alþjóðlega öryggislausna fyrirtækisins Verisign sem býður fjölbreytt úrval rafrænna skilríkja og þjónustu. Til að tryggja notendum örugg tölvupóstssamskipti var leitað til stærsta fyrirtækisins á sviði öryggislausna.
Skilríkin sem Verisign gefur út er annars vegar skilríki fyrir tölvupósts samskipti og hinsvegar skilríki fyrir vefþjóna. Notandinn getur ákveðið hvort hann vilji dulkóða póst sinn eða ekki áður en hann er sendur. Öll skilríki frá Verisign eru gefin út samkvæmt ströngum vinnuferlum sem tryggja að ávallt megi treysta skilríkjum frá Verisign. Rafræn skilríki eru lykilatriði til að hægt sé að stunda örugg viðskipti á netinu. Verisign skilríkin eru viðurkennd lausn sem eru notuð til auðkenningar og vottunar á viðskiptum. Með vottun frá Verisign ertu örugg(ur) með tölvupóst þinn og vefsetur.
Content Watch Hugbúnaður
ContentProtect er hugbúnaður til að stýra aðgangi inn á internetið og einnig til að geta fylgst með Internet hegðun tölvunotenda.
Hvort sem þar er um að ræða stjórnendur fyrirtækja til að auka afköst starfsfólks eða fyrir foreldra sem vilja hafa stjórn á því inn á hvaða síður börnin þeirra eru að vafra.






