Sophos SBE
|
Heildarlausn fyrir minni og meðalstór fyrirtæki. |
|
Eigin vefaðgangur að gagnabanka Sophos |
|
Öflug miðlæg stýring með Sophos Control Center |
|
Sophos Anti-Virus f/Windows + Mac, Adware/PUA vörn |
|
24klst þjónusta allt árið (síma, e-mail, online) |
|
Heils árs uppfærsla |
|
Hægt er að fá magnafslátt með lengri samning: |
|
Tveggja ára samningur @ 150% af heildarverði |
|
Þriggja ára samningur @ 200% af heildarverði |
|
Fimm ára samningur @ 300% af heildarverði |
Verð á Sophos pökkum eru eftirfarandi.
|
3 tölvur |
5 tölvur |
10 tölvur |
25 tölvur |
50 tölvur |
|
20.400 |
27.900 |
53.800 |
118.200 |
228.900 |
Sophos veiruvörn
Fyrirtæki og stofnanir
Netheimur hefur síðustu 9 ár boðið fyrirtækjum og stofnunum upp á hágæða veiruvörn frá breska veiruvarnarframleiðandanum SOPHOS PLC. Kostir Sophos eru:
- Sérhannað fyrir fyrirtækja umhverfi (netkerfi)
- Sjálfvirkar uppfærslur
- Öll uppsetning frá einum miðlægum punkti
- Póstgátt - Exchange - Lotus Notes - SMTP
- Styður öll helstu stýrikerfi
- Heildarlausn í veiruvarnarmálum fyrir allar stærðir fyrirtækja
- Margverðlaunaður hugbúnaður um heim allan
Sophos Anti-Virus er fullkomin veiruvörn með netvirkni sem útgangspunkt. Hún var hönnuð sérstaklega fyrir fyrirtækjaumhverfi og býður upp á sveigjanlega og auðvelda lausn til að stjórna þessum málum hjá fyrirtækjum allt frá litlum staðarnetum yfir í gríðarstór netkerfi með fjöldann allann af netþjónum og útstöðvum.
Veiruskimun og hreinsun.
Sophos hugbúnaður er með frábæra leitarvél sem getur skynjað áður óþekkt veiruafbrigði ásamt því að sjálfsögðu að finna ALLA þær veirur sem þekktar eru. En vegna þess hve Sophos er hugvitsamlega sett saman þá eru samt minni líkur en hjá sambærilegum veiruvarnarbúnaði að Sophos gefi frá sér falska viðvörun.
Þegar veira hefur verið skynjuð, þá sótthreinsar Sophos hugbúnaðarvélin svokallaðar "macro" og "ræsigeira" veirur sjálfvirkt. Hugbúnaðurinn getur einnig sótthreinsað ýmsar algengar .exe veirur.
Sophos veiruvarnarbúnaður hefur hvað eftir annað fengið viðurkenningar fyrir frábæran árangur í því að skynja og uppræta veirur. Fjöldi viðurkenndra og óháðra rannsóknaraðila eins og TruSecure ISCA Lab, West Coast Labs og Virus Bulletin hafa sýnt fram á það í sínum prófunum. Einnig hefur fjöldi sérhæfðra tölvublaða stöðugt hælt og verðlaunað Sophos hugbúnað.
Eiginleikar Sophos Anti-Virus
Hið stöðuga eftirlit Sophos á veiru hættunni tryggir skjót viðbrögð við nýjum veirum. Sophos Anti-Virus færir notandanum 100 % vörn yfir allt netkerfið.
Allar smitleiðir varðar
Sophos Anti-Virus fylgist með öllum smitleiðum, eins og diskum, forritum, skjölum, netsvæðum og geisladiskum. Einnig fylgist hún með pósti, niðurhali af internetinu, sameignarsvæðum og þjöppuðum skrám. Mælum við þá sérstaklega með Sophos MailMonitor fyrir póstinn. Á öllum þessum smitleiðum þá kemur Sophos Anti-Virus í veg fyrir aðgang að sýktum skrám og ef það er viðeigandi þá sótthreinsar hún skrána.
Öllu stjórnað frá einni vél
Sophos Anti-Virus nálgast viðfangsefni sitt á einstæðan hátt og gefur það möguleika á miðstýrðri uppsetningu/uppfærslu og stillingu allt frá einni tölvu. Veiruatvik og viðvaranir eru sjálfvirkt tilkynnt og skráð miðlægt. Að bæta við nýjum netþjónum og útstöðvum er einfalt og þægilegt. Svokallaðir "draga" og "ýta" tæknimöguleikar tryggja lítið álag á netbandvídd og það besta er að notandinn á útstöðvunum þarf ekki að gera neitt.



