Sophos
Þjónusta - Hýsing
Þjónusta - Afritunartaka

Netheimur ehf.

Forsendan fyrir farsælum framgangi í fyrirtækjarekstri er að allar boðleiðir samskipta séu einfaldar, skýrar og skjótar. Netheimur sérhæfir sig í alhliða ráðgjöf og þjónustu á hugbúnaðar- og tæknimálum fyrirtækja ásamt uppsetningum á skotheldum lausnum sem eru sérsniðnar að þörfum hvers og eins fyrirtækis.

Rekstur tölvu- og fjarskiptamála

Í dag einbeitir Netheimur sér nær eingöngu að þjónustu sem snýst um rekstur á sviði tölvu- og fjarskiptamála hjá fyrirtækjum, stofnunum og einstaklingum. Boðið er upp á staðlaðar eða sérsniðnar heildarlausnir í uppsetningu og rekstri búnaðar ásamt hýsingu netþjóna auk tilfallandi sérlausna fyrir hvern viðskiptavin fyrir sig. Þjónustumöguleikarnir eru í raun óþrjótandi en þeir tengjast alls kyns gagnaflutningum, símakerfum, upplýsingavinnslu, tölvupósti, heimasíðum, öryggislausnum, veiruvörnum, afritunartöku og nettengingum. Fyrirtæki geta í raun kosið sér hvort allt sé í hýsingu eða aðeins afmarkaðir hlutar eins og afrit gagna, tölvupóstur eða vefsíður.

Kapp er best með forsjá

Samfara þessu hefur Netheimur unnið ötullega að fjölþættum þróunarverkefnum sem miða að skjótvirkari og auðveldari meðhöndlun stafrænna upplýsinga ásamt samræmingu þeirra við það fjarskiptumhverfi sem fyrir er hjá viðkomandi fyrirtæki.

Þrátt fyrir stutta vegferð hefur rekstur Netheims verið mjög farsæll. Hugmyndin byggir þó á að allt kapp sé best með forsjá en þannig hefur hluti af hagnaði starfseminnar ávallt verið nýttur til að byggja reglulega upp og endurnýja allan tæknibúnað. Þetta hefur skilað sér í sífellt umfangsmeiri verkefnum og að sama skapi fleiri áfangasigrum. Á undanförnum árum hefur Netheimur öðlast ýmsar viðurkenningar fyrir ferskar nýjungar í fyrirtækjarekstri.